23.02.11 - 17:05
Magnús Már Einarsson
Arsenal fær Jon Toral frá Barcelona (Staðfest)

Fabregas fór til Arsenal árið 2003.

Mynd: Getty Images

Fabregas fór til Arsenal árið 2003.

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur fengið hinn 16 ára gamla Jon Toral frá Barcelona en spænska félagið fær 350 þúsund pund fyrir leikmanninn.
Leikmaðurinn gat samið við annað félag og hann ákvað að nýta sér það og fara til Arsenal.
Toral fetar þar með í fótspor Cesc Fabregas sem fór einnig til Arsenal eftir að hafa leikið með Barcelona í yngri flokkunum.
Toral er afar efnilegur miðjumaður en móðir hans er frá Englandi.
Pere Guardiola, bróðir Pep Guardiola þjálfara Barcelona, er umboðsmaður Toral.

Heimild: BBC