23.03.11 - 10:04
Magnús Már Einarsson
Bjarni Hólm til Levanger (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Hólm Aðalsteinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við norska félagið Levanger.
Levanger leikur í annarri deildinni í Noregi en Rúnar Páll Sigmundsson fyrrum þjáfari HK er þjálfari liðsins auk þess sem að Hörður Magnússon fyrrum leikmaður HK er einnig á mála hjá félaginu.

Bjarni Hólm hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Keflavík en hann hefur ekki æft með liðinu í vetur.
Þessi 26 ára gamli leikmaður fór til Levanger á reynslu á dögunum og samdi í kjölfarið við félagið.
Bjarni er uppalinn hjá Huginn á Seyðisfirði en hann hefur einnig leikið með Fram og ÍBV hér á landi.

Heimild: Heimasíða Levanger