Fotbolti.net
23.12.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Stefán Ingi í Fjarðabyggð (Staðfest) - Andri Þór framlengir

Andri Þór Magnússon.

Andri Þór Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Þór Magnússon skrifaði í fyrradag undir nýjan tveggja ára samning við Fjarðabyggð og þá er Stefán Ingi Björnsson genginn til liðs við félagið frá Hetti og gerði tveggja ára samning við félagið.
Stefán er 20 ára varnarmaður úr Fjarðabyggð en hefur undanfarin ár spilað með Hetti á Egilsstöðum samtals 32 leiki.

Andri er 22 ára varnarmaður og hefur alla tíð leikið með Fjarðabyggð. Andri lék fyrst með Fjarðabyggð árið 2005 í 2. deild aðeins 17 ára gamall en frá árinu 2006 hefur Andri verið byrjunarliðsmaður.

Samtals hefur Andri leikið 100 leiki með Fjarðabyggð þrátt fyrir ungan aldur. Fjarðabyggð féll úr 1. deildinni í haust og leikur því í 2. deild næsta sumar. Haukur Ingvar Sigurbergsson og Heimir Þorsteinsson þjálfa liðið næsta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.