23.12.10 - 12:29
Hafliði Breiðfjörð
Rafael Benítez hættur hjá Inter Milan (Staðfest)

Rafael Benítez er hættur með Inter Milan.

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Inter Milan hefur staðfest brottreekstur Rafael Benítez úr starfi knattspyrnustjóra aðeins sex mánuðum eftir að hann tók við liðinu.
Umboðsmaður Benítez hitti lögmenn Inter Milan í morgun til að ræða riftun samnings hans.
Massimo Moratti forseti félagsins mun hafa tekið þessa ákvörðun eftir að Benítez fór fram á að kaupa þrjá eða fjóra nýja leikmenn í janúar í kjölfar slæms gengis á tímabilinu.
,,Inter og Rafael Benítez vilja tilkynna það að sameiginleg niðurstaða beggja aðila er sameiginlegt samkomulag um að leysa fyrr upp samstarf sitt en áætlað var,\" sagði í yfirlýsingu á vef Inter.
,,Inter vill enn og aftur þakka Rafael Benítez fyrir það starf sem hann gerði er hann stýrði liðinu, sem hefur skilað árangri í ítalska ofurbikarnumog Heimsmeistaramóti félagsliða.\"
Benítez þakkaði Inter líka fyrir þá reynslu sem hann fékk hjá félaginu og titlana sem þeir unnu saman.

Heimild: Football-Italia