23.12.10 - 18:07
Hafliði Breiðfjörð
Snorri Már Jónsson tekur við Reyni Sandgerði (Staðfest)

Snorri Már í leik með Njarðvík.

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Snorri Már í leik með Njarðvík.

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Snorri Már Jónsson hefur tekið við þjálfun 2. deildarliðs Reynis frá Sandgerði en hann tekur við starfinu af Sinisa Kekic sem var að hætta óvænt með liðið eftir mánuð í starfi.
Snorri Már er 35 ára gamall og lék á ferli sínum 203 leiki með Keflavík, Grindavík og Njarðvík.
Hann spilaði með Reyni árið 1996 þegar liðið fór upp í 1. deild.
Undanfarin ár hefur hann þjálfað sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur í 2. flokki karla með góðum árangri.
Hann hefur fimmtu gráðu þjálfarastigs sem inniheldur UEFA B réttindi.