24.01.11 - 11:09
Magnús Már Einarsson
Demba Ba til West Ham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
West Ham United hefur fengið framherjann Demba Ba á láni frá Hoffenheim út þetta tímabil.
Ba var á leið til Stoke á dögunum áður en hann féll á læknisskoðun hjá félaginu.
Ba var á leið til Stoke á dögunum áður en hann féll á læknisskoðun hjá félaginu.
West Ham ákvað þá að ganga í að fá Ba á láni en Sunderland, Everton, Fulham og West Bromwich Albion reyndu einnig að krækja í leikmanninn um helgina.
Ba kemur til með að styrkja leikmannahóp West Ham en ekki er ólíklegt að Avram Grant fái fleiri leikmenn til félagsins á næstu dögunum til að hjálpa til í fallbaráttunni sem er framundan.
Ba kemur til með að styrkja leikmannahóp West Ham en ekki er ólíklegt að Avram Grant fái fleiri leikmenn til félagsins á næstu dögunum til að hjálpa til í fallbaráttunni sem er framundan.
Heimild: Sky
