24.01.11 - 18:54
Ívan Guðjón Baldursson
Massimo Maccarone kominn til Sampdoria (Staðfest)

Massimo Maccarone lék 80 leiki fyrir Middlesbrough þar sem hann skoraði aðeins 16 mörk.

Mynd: Getty Images

Staðfest hefur verið á vefsíðum Palermo og Sampdoria á Ítalíu að Massimo Maccarone sé genginn til liðs við Sampdoria.
Maccarone er talinn vera staðgengill Antonio Cassano sem fór frá Sampdoria til Milan fyrir nokkrum vikum. Maccarone gekk til liðs við Palermo í sumar þar sem hann skrifaði undir 3 ára samning en honum tókst ekki að festa sig í sessi þar.

Maccarone er 31 árs gamall og var á sínum tíma talin ein bjartasta von ítalskrar knattspyrnu þegar hann lék 15 leiki með U21 árs liði Ítalíu og skoraði í þeim 11 mörk. Svo var hann seldur til Middlesbrough og lék þar í 7 ár og dalaði mikið á þeim tíma.
Maccarone á 2 A-landsliðsleiki að baki en hann var frægur árið 2002 fyrir að vera valinn í aðal landsliðshóp Ítala þrátt fyrir að leika fyrir félag í B-deildinni.

Heimild: World Soccer