Fotbolti.net
24.01.11 - 20:28
Ívan Guðjón Baldursson

David Elm farinn frá Fulham til Elfsborg (Staðfest)

David Elm farinn frá Fulham til Elfsborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Á vefsíðu Fulham staðfestir félagið brottför sænska sóknarmannsins David Elm, en hann gengur til liðs við Elfsborg í byrjun febrúar.

Elm gekk í raðir Fulham fyrir 18 mánuðum en fyrir það lék hann með Kalmar. Frá komu sinni til Fulham hefur Elm ekki fundið sig og á síðasta tímabili skoraði hann aðeins 1 mark þrátt fyrir að hafa spilað í 17 leikjum.
Undir stjórn Mark Hughes hefur þessi 28 ára gamli Svíi ekkert fengið að spila og því er hann farinn frá félaginu til Elfsborg þar sem hann er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning.

,,Knattspyrnufélagið Fulham staðfestir félagsskipti David Elm til sænska liðsins IF Elfsborg þann 1. febrúar 2011,\" segir á vefsíðu Fulham.

,,FFC (Fulham Football Club) þakkar David fyrir starf sitt hjá félaginu og óskar honum velgengni í framtíðinni.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.