Fotbolti.net
24.03.11 - 17:15
Magnús Már Einarsson

Brad Jones til Derby á láni (Staðfest)

Brad Jones til Derby á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Derby County hefur fengið Brad Jones markvörð Liverpool á láni út tímabilið.

Jones, sem er 29 ára Ástrali, á að fylla skarð Matt Duke sem er farinn aftur til Hull City eftir að hafa verið í láni hjá Derby.
,,Var að skrifa undir lánssamning við Derby County út tímabilið. Hlakka til að spila einhverja leiki áður en tímabilið klárast,\" sagði Jones á Twitter síðu sinni í dag.

Jones hefur leikið tvo leiki með Liverpool síðan hann kom til félagsins frá Middlesbrough á 2,3 milljónir punda í ágúst.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.