24.04.11 - 16:23
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Már Guðmundsson í Þór (Staðfest)

Gunnar Már í undanúrslitum Lengjubikarsins með FH fyrir helgi. Hann leikur með Þór í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Gunnar Már Guðmundsson miðjumaður FH hefur verið lánaður til Þórs til næstu sex mánuðina en þetta var staðfest á vef félagsins rétt í þessu.
Hann mun því leika með félaginu alla komandi leiktíð og fer norður til Akureyrar á morgun til að undirrita samninginn.

Gunnar Már er uppalinn Fjölnismaður en hann gekk til liðs við FH sumarið 2010. Gunnar er gríðarlega reynslumikill leikmaður og á að baki 185 leiki í öllum deildum og skorað 43 mörk.
Af þessu hefur Gunnar leikið 55 leiki í efstu deild með Fjölni (43) og FH (12) og í þeim skoraði hann 16 mörk.
Hann hafði fyrr í dag staðfest að hann teldi Þór spennandi kost og nú er orðið staðfest að hann leikur með liðinu í sumar.
„Ég hef verið mikið meiddur síðasta ár og fór fram á það við FH að vera lánaður til að koma mér í spilform,\" sagði Gunnar Már við Fótbolta.net í dag.
Gunnar Már er sjöundi leikmaðurinn sem kemur til Þórs síðan þeir unnu sér sæti í Pepsi-deildinni síðasta haust.
Áður höfðu komið David Disztl frá KA, Janez Vrenko frá KA, Kristján Sigurólason frá Stryn, Ingi Freyr Hilmarsson frá Ärdal, Pétur Heiðar Kristjánsson frá Noregi og markvörðurinn Srdjan Rajkovic frá Fjarðabyggð.

Heimild: Vefur Þórs