Hugur Gylfa virðist stefna aftur í boltann - Ísland, Bandaríkin eða Katar?

Gylfi Þór Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson virðist setja stefnuna á að snúa aftur í fótboltann samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Í útvarpsþættinum sem nú stendur yfir á X977 er sagt að Gylfi sé að skoða sína möguleika.
Ýmsar sögur hafa verið í gangi um Gylfa en svo virðist sem það séu þrír valmöguleikar; Ísland, Bandaríkin eða Katar.

„Það hafa verið háværar sögusagnir um að Gylfi gæti farið í Val. Skiljanlega því samkvæmt mínum heimildum þá átti sér stað fundur milli hans og Vals," segir Elvar Geir Magnússon í þættinum.
„Hugur Gylfa beinist víst frekar að Bandaríkjunum og Katar. Það er möguleiki á því að hann fari í bandarísku MLS-deildina og þá er víst áhugi frá Al Arabi í Katar. Þar sem Gylfi gæti orðið samherji Arons Einars Gunnarssonar."
„Ef Gylfi færi í íslensku deildina, sem ég held að sé reyndar ólíklegt eins og staðan er núna, þá yrði það bara út tímabilið og fram að því að hann færi út að spila í haust. En það yrði auðvitað ristastórt fyrir Bestu deildina ef það myndi gerast."
Gylfi hefur verið orðaður við DC United en þjálfari liðsins er Wayne Rooney, hans gamli samherji hjá Everton. Gylfi var fyrst orðaður við félagið 2020. Sjálfur hefur Gylfi ekkert tjáð sig opinberlega síðan hann varð laus allra mála.
Sjá einnig:
Gæti Gylfi orðið samherji Arons með Al-Arabi