Fotbolti.net
24.07.23 - 19:32
Brynjar Ingi Erluson

Mbappe grenjaði úr hlátri yfir færslu um Al-Hilal - „Getið fengið mig“

Kylian Mbappe

Kylian Mbappe

Canon

Mynd: EPA

Paris Saint-Germain samþykkti í dag heimsmetstilboð Al-Hilal í Kylian Mbappe en leikmaðurinn á enn eftir að ræða við félagið.
Al-Hilal er tilbúið að borga honum 700 milljóni evra í árslaun og þá á Mbappe möguleika á að semja við Real Madrid á næsta ári ef hann vill, en ef ekki þá býðst honum að framlengja við félagið.

Gríski körfuboltamaðurinn GIannis Antetokounmpo, sem leikur með Milwaukee Bucks í NBA-deildinni, frétti af tilboði Al-Hilal og ákvað því aðeins að grínast með það.

„Al-Hilal, þið getið tekið mig. Ég lít út eins og Mbappe,“ sagði Giannis og birti mynd af sér við færsluna á Twitter.

Mbappe hafði greinilega gaman af þessu og grenjaði úr hlátri en marka má lyndistáknin sem fylgdu hans færslu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.