Fotbolti.net
24.11.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Einar Jónsson þjálfar Árborg (Staðfest)

Einar Karl Þórhallsson formaður Árborgar ásamt Einari Jónssyni.

Einar Karl Þórhallsson formaður Árborgar ásamt Einari Jónssyni.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Einar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Árborgar í knattspyrnu. Einar tekur við starfinu af Adólf Bragasyni sem hætti þjálfun liðsins í haust. Árborg varð í 3. sæti 3. deildar sl. sumar en vann sér sæti í 2. deild eftir sameiningu Hvatar og Tindastóls.
Einar á langan feril að baki sem leikmaður og þjálfari. Hann er leikjahæsti leikmaður Selfyssinga þar sem hann lék meira en 400 leiki á árunum 1974-1994. Hann lék einnig með ÍBÍ í efstu deild árið 1982.

Einar þjálfaði yngri flokka Selfoss í mörg ár áður en hann tók við meistaraflokki Selfoss haustið 1994, þegar hann lagði skóna á hilluna. Einar þjálfaði Selfyssinga til ársins 1999, með stuttu hléi árið 1998 þegar hann tók aftur við liðinu á miðju sumri og bjargaði því frá falli. Hann tók við kvennaliði Selfoss 1998 áður en hann hóf þjálfum meistaraflokks Ægis í Þorlákshöfn 2000-2002. Einar tók svo aftur við Selfyssingum haustið 2005 og þjálfaði liðið fram í júní sumarið 2007.

,,Við rennum dálítið blint í sjóinn, í fyrsta skipti í þessari deild en flestir leikmenn okkar hafa einungis reynslu af 3. deildinni. Það er því mikilvægt að fá reynslumikinn mann í brúna og við erum gríðarlega ánægðir að fá Einar Jónsson til liðs við okkur,\" sagði Einar Karl Þórhallsson formaður Árborgar í samtali við Fótbolta.net.

,,Hann þekkir þessa deild og þá fyrir ofan bæði sem þjálfari og leikmaður og getur örugglega miðlað mikilli reynslu til liðsins. Það ríkir mikil eftirvænting og tilhlökkun í okkar herbúðum að fá að takast á við nýja áskorun í 2. deildinni,” hélt hann áfram.

,,Viljum líka þakka Adólf Bragasyni, fráfarandi þjálfara, fyrir frábært starf síðustu þrjú ár. Hann á langstærstan þátt í því að liðið er komið í 2. deild, ásamt reyndar stjórnarmönnum í Tindastól og Hvöt, sem við kunnum bestu þakkir fyrir,” sagði Einar Karl léttur að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.