24.11.10 - 15:26
Magnús Már Einarsson
Roman Bednar til Leicester (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sven-Goran Eriksson, stjóri Leicester, hefur fengið framherjann Roman Bednar á láni frá WBA þar til í janúar.
Bednar hefur einungis leikið þrjá leiki með WBA á tímabilinu en þessi 27 ára gamli Tékki var einnig á óskalista Hull City.
Bednar hefur alls skorað 30 mörk í 85 leikjum með WBA síðan hann kom til félagsins frá Hearts.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem Leicester fær síðan Eriksson tók við stjórnartaumunum en áður höfðu Kyle Naughton, Curtis Davies og Greg Cunningham komið á láni auk þess sem framherjinn Darius Vassell kom frítt til félagsins.

Heimild: BBC