24.12.10 - 20:49
Hafliði Breiðfjörð
Leonardo tekur við Inter Milan (Staðfest)

Leonardo er kominn til Inter Milan.

Mynd: Getty Images

Leonardo er kominn til Inter Milan.

Mynd: Getty Images
Leonardo fyrrverandi knattspyrnustjóri AC Milan var í kvöld ráðinn nýr knattspyrnustjóri Inter Milan.
Hann tekur við starfinu af Rafael Benítez sem var rekinn úr starfi í gær eftir nokkurra daga vangaveltur um slíkt.

Leonardo gerði samning við Inter sem gildir frá miðvikudeginum næsta til júní árið 2012.
Benítez hafði gert Inter að Heimsmeisturum félagsliða um síðustu helgi en liðið er í sjöunda sæti ítölsku Serie A deildarinnar, 13 stigum á eftir toppliði AC Milan.
Leonardo hafði verið þjálfari hjá AC Milan á síðustu leiktíð en undir hans stjórn endaði liðið í þriðja sæti deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann lenti upp á kant við silvio Berlusconi knattspyrnustjóra og var látinn hætta í sumar.

Heimild: AP