25.01.11 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Markahæsti leikmaður brasilísku deildarinnar á leið til Valencia (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Valencia á Spáni er búið að tryggja sér þjónustu Jonas Gonçalves Oliveira sem var markahæsti leikmaður brasilísku deildarinnar á síðasta tímabili með Gremio.
Jonas Gonçalves Oliveira er kallaður skírnarnafni sínu, Jonas, og er búinn að skora 40 mörk í 69 leikjum með Gremio frá því að hann gekk til liðs við þá árið 2007. Jonas er 26 ára gamall.
Jonas Gonçalves Oliveira er kallaður skírnarnafni sínu, Jonas, og er búinn að skora 40 mörk í 69 leikjum með Gremio frá því að hann gekk til liðs við þá árið 2007. Jonas er 26 ára gamall.
Á samning Jonas hjá Gremio var sérstök klásúla sem gerði honum kleift að fara frá félaginu ef boðið væri 1.7 milljón dollara í hann.
Valencia gerði nákvæmlega það eftir að sóknarmaðurinn hafði skorað 23 mörk í brasilísku Úrvalsdeildinni og nú er hann formlega orðinn leikmaður Valencia.
Valencia gerði nákvæmlega það eftir að sóknarmaðurinn hafði skorað 23 mörk í brasilísku Úrvalsdeildinni og nú er hann formlega orðinn leikmaður Valencia.
Heimild: Sports Illustrated
