Fotbolti.net
25.01.11 - 18:51
Magnús Már Einarsson

Bradley Wright-Phillips til Charlton (Staðfest)

Bradley Wright-Phillips til Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kári Árnason og félagar í Plymouth hafa misst sinn helsta markaskorara því Bradley Wright-Phillips hefur gengið í raðir Charlton.
Plymouth þurfti að selja Wright-Phillips þar sem félagið skuldar skattayfirvöldum á Englandi.

Bradley, sem er bróðir Shaun Wright-Phillips, er langmarkahæsti leikmaður Plymouth í vetur með 13 mörk.

Á dögunum leit út fyrir að hann myndi ganga í raðir Reading en hann féll á læknisskoðun þar.

Wright-Phillips slapp hins vegar í gegnum læknisskoðun hjá Charlton og hann hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við félagið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.