Fotbolti.net
25.01.11 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Gary O\'Neil til West Ham (Staðfest)

Gary O\'Neil til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hefur keypt kantmanninn Gary O\'Neil frá Middlesbrough.
Félögin komust að samkomulagi um kaupverð í gær og O\'Neil hefur nú staðist læknisskoðun og samið við Hamrana.

O\'Neil skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við West Ham en talið er að kaupverðið sé allt að 1,2 milljónir punda.

O\'Neil gæti leikið sinn fyrsta leik með West Ham þegar liðið mætir Birmingham annað kvöld í síðari undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum.

West Ham er 2-1 yfir eftir fyrri leikinn þar en síðari leikurinn á morgun fer fram á St Andrews heimavelli Birmingham.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.