Fotbolti.net
25.01.11 - 11:37
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Mark van Bommel til AC Milan (Staðfest)

Mark van Bommel til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Mark van Bommel hefur losnað undan samningi hjá FC Bayern og gengið til liðs við AC Milan.
Þessi 33 ára gamli Hollendingur var fyrirliði Bayern en samningur hans við félagið átti að renna út í sumar.

Van Bommel óttaðist að fá ekki að spila mikið á síðari hluta tímabilsins og hann fékk því að fara til AC Milan.

,,Ég er stoltur fyrirliði og félagið hefur ekki staðið í vegi fyrir mér,\" sagði van Bommel.

,,Ég er mjög ánægður með (Karl-Heinz) Rummenigge (formann Bayern) og hvernig hann hefur komi fram við mig, það verðskuldar virðingu.\"

,,Ég vil ekki tala um ástæður þess (að ég ákvað að fara).\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.