Fotbolti.net
25.02.11 - 17:32
Hafliði Breiðfjörð

Jósef Kristinn í PSFC Chernomorets Burgas (Staðfest)

Jósef Kristinn í leik með Grindavík.

Jósef Kristinn í leik með Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jósef Kristinn Jósefsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við búlgarska liðið PSFC Chernomorets Burgas en hann var á reynslu hjá liðinu í síðasta mánuði. Þetta kom fram á vef Grindavíkur í dag.
Chernomorets Burga kaupir Jósef af Grindavík en kaupverðið er trúnaðarmál. Keppni í búlgörsku deildinni hefst aftur á morgun eftir vetrarfrí en félagaskiptaglugginn þar í landi lokar á sunnudaginn.

Á vef Grindavíkur vildi Jósef koma á framfæri þakklæti til allra stuðningsmanna, leikmanna og stjórn Grindavíkur fyrir frábær ár með félaginu með von um að því farnist vel. Hann segir að samningaviðræðurnar við búlgarska liðið hafi gengið vel fyrir sig og hann sé jafnframt mjög spenntur að takast á við atvinnumennskuna sem hafi alltaf verið markmið hans.

,,Við fögnum því að Grindvíkingur í húð og hár sem alinn er upp hér í félaginu fái þetta tækifæri. Jósef er vel að því kominn, hann hefur lagt mikið á sig við æfingar og í leikjum og hefur alla burði til þess að ná langt í boltanum,“ sagði Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar við heimasíðuna.

Jósef sem er 21 árs hefur leikið allan sinn feril með Grindavík. Hann hefur leikið 90 með Grindavík í Pepsideild, 1. deild og Vísabikar og skorað 6 mörk. Þá hefur hann leikið 5 leiki með U21 árs liði Íslands og skoraði 1 mark, 10 með U19 og 7 með U17.

Heimild: Vefur Grindavíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.