Fotbolti.net
25.03.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Brynjar Orri í KV (Staðfest)

Brynjar Orri í KV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KV, sem leikur í þriðju deild, hefur fengið góðan liðsstyrk því Brynjar Orri Bjarnason hefur gengið til liðs við félagið.
Brynjar er miðju og sóknarmaður en hann er bróðir Theodórs Elmars Bjarnasonar leikmanns IFK Gautaborg.

Brynjar er uppalinn hjá KR en í fyrra lék hann með Våg í norsku þriðju deildinni.

Sumarið 2008 var Brynjar Orri í láni hjá Víkingi Reykjavík.

Ári síðar var hann síðan í láni hjá Leikni þar sem hann skoraði þrjú mörk í sautján leikjum í fyrstu deildinni og VISA-bikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.