25.03.11 - 14:09
Ívan Guðjón Baldursson
Heynckes tekur við Bayern (Staðfest)

Jupp Heynckes tekur við af Louis van Gaal á næsta tímabili.

Mynd: Getty Images

Jupp Heynckes, knattspyrnustjóri Bayer Leverkusen, gaf það út fyrr í vikunni að hann myndi hætta sem stjóri félagsins þegar tímabilinu lyki.
Orðrómar tengdu hann þá við stjórastöðuna hjá þýska stórveldinu Bayern Munchen og nú hefur það verið staðfest á opinberri heimasíðu Bayern.

Heynckes er 65 ára gamall og á stórglæsilegan feril að baki bæði sem knattspyrnumaður og stjóri. Til að mynda sigraði hann Meistaradeild Evrópu við stjórnvölinn hjá Real Madrid tímabilið 1997-98.
Bayern er ekki ókunnugt félag fyrir Heynckes en hann hefur stýrt liðinu tvisvar áður. Hann tók við liðinu fyrst 1987 og var knattspyrnustjóri liðsins í fjögur ár og á þessum árum vann hann deildina tvisvar. Hann var svo rekinn eftir slakt gengi á fjórða tímabilinu en þá endaði Bayern fimm sætum fyrir ofan fallsæti.
Heynckes var þó ráðinn aftur árið 2009 þegar fimm leikir voru eftir af tímabilinu hjá Bayern og var verkefni hans var að koma liðinu í eitt af efstu þremur sætum deildarinnar og ná þar með sæti í Meistaradeildinni. Það verkefni heppnaðist þar sem liðið náði fjórum sigrum og einu jafntefli og hafnaði í öðru sæti deildarinnar.
Eftir það tók hann við Bayer Leverkusen og hefur átt góðu gengi að fagna með þeim. Nú er Bayer Leverkusen í öðru sæti með 55 stig en Bayern Munchen í fjórða sæti með 48 stig og munu liðin mætast 17. apríl á Allianz Arena í Munchen.

Heimild: Basti