25.03.11 - 15:03
Magnús Már Einarsson
Aco Pandurevic í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson

Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
BÍ/Bolungarvík hefur samið við serbneska hægri bakvörðinn Aco Pandurevic.
Pandurevic, sem er 29 ára gamall, getur einnig leikið á kantinum og í vinstri bakverði.
Pandurevic lék í fyrra með Sumadija Jagnjilo í heimalandi sínu en þar áður spilaði hann í fimm ár í Færeyjum.
Fyrst lék Pandurevic með VB/Sumba í tvö ár áður en hann fór til NSI Runavik þar sem hann var í þrjú ár.
Pandurevic er áttundi leikmaðurinn sem BÍ/Bolungarvík fær til sín í vetur en spennandi verður að fylgjast með Vestfirðingum undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar í fyrstu deildinni í sumar.