Fotbolti.net
25.04.23 - 14:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Máni einnig á förum frá FH

Máni Austmann

Máni Austmann

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það eru allavega einhverjar líkur á því að hann sé að fara," sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, þegar Fótbolti.net ræddi við hann í dag. Hann var spurður hvort hann væri að selja Oliver Heiðarsson.

Oliver er í viðræðum við ÍBV, FH hefur samþykkt kauptilboð í kantmanninn. Félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld.
Davíð var spurður út í Mána Austmann Hilmarsson sem orðaður var við HK fyrir helgi. Er Máni á förum?

„Það er mál sem er í vinnslu, hann vill náttúrulega fá að spila og við höfum ekki getað boðið honum upp á það. Við erum bara að leita lausna í því og ég hugsa að það verði klárt áður en glugginn lokar á morgun."

Eru líkur á því að einhverjir fleiri fari?

„Nei, mér finnst það mjög ólíklegt," sagði Davíð.

Máni er 24 ára gamall miðjumaður sem getur leyst fleiri stöður.

„Það verður bara að koma í ljós (hvort það séu að koma inn viðbætur fyrir lok gluggans). Það er ekki stór markaður í gangi hérna heima og oft erfitt að finna menn annars staðar á þessum tímapunkti. Við erum að líta í kringum okkur en engin dauðaleit," sagði Ómari Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, í viðtali við Fótbolta.net í gær.

Sjá einnig:
Vill frekar þróa sína leikmenn - „Höfum ekki verið að taka lánsmenn nema í neyð"
Tíu sem gætu fengið félagaskipti áður en glugginn lokar á morgun
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.