Fotbolti.net
25.11.10 - 11:37
Hafliði Breiðfjörð

Jose Luis Oltra tekur við Almeria (Staðfest)

Jose Luis Oltra tekur við Almeria (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Almeria tilkynnti í gærkvöld að félagið hafi ráðið Jose Luis Oltra sem nýjan knattspyrnustjóra en hann mun stýra liðinu út tímabilið.
Almeria sagði að eftir maraþon viðræður hafi Oltra sem er 41 árs gamall samþykkt að taka við liðinu sem er í næst neðsta sæti deildarinnar.

Oltra sem er fyrrverandi þjálfari Tenerife tekur við starfinu af Juan Manuel Lillo sem var rekinn eftir 8-0 tapið gegn Barcelona á laugardagskvöldið en það er stærsti ósigur í spænsku deildinni í 51 ár.

Argentínumaðurinn Nestor Gorosito hafði einnig rætt við Almeria samkvæmt spænskum fjölmiðlum. almeria hefur aðeins unnið einn leik af 12 og fyrsti leikur undir stjórn Oltra verður gegn Valencia á sunnudaginn.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.