25.11.10 - 16:52
Hafliði Breiðfjörð
Chris Kirkland til Leicester (Staðfest)

Chris Kirkland er farinn til Leicester.

Mynd: Getty Images

Chris Kirkland er farinn til Leicester.

Mynd: Getty Images
Leicester City hefur gengið frá samningum um að fá Chris Kirkland markvörð Wigan á láni fram í janúar.
Kirkland sem er 29 ára gamall virtist vera að fara til Leicester í síðustu viku en veiktist svo ekkert varð úr því.
Hann var í upphafi leiktíðar byrjunarliðsmarkvörður Wigan en missti sæti sitt til Ali All Habsi sem er á láni frá Bolton.
Kirkland á að baki einn leik fyrir enska landsliðið en var upphaflega valinn í hópinn af Sven Göran Eriksson sem í dag er knattspyrnustjóri Leicester.
Hann hóf feril sinn hjá Coventry og spilaði reyndar aldrei landsleik hjá Eriksson því það var eftirmaður hans, Steve McClaren sem setti hann inná í eina landsleikinn, í hálfleik í 4-0 sigri á Grikkjum 2006.

Heimild: BBC