Fotbolti.net
25.11.10 - 18:28
Hafliði Breiðfjörð

Aaron Ramsey til Nottingham Forest (Staðfest)

Aaron Ramsey til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur lánað Aaron Ramsey til Nottingham Forest en með því vill félagið koma honum í leikform að nýju enda nýlega byrjaður að æfa að nýju eftir ljótt fótbrot.
Ramsey semur við Nottingham Forest til 3. janúar næstkomandi en Arsenal staðfesti þetta á vef sínum í dag.

Ramsey sem er 19 ára gamall miðjumaður spilaði nýlega með varaliðinu gegn Wolves.

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal vill fá leikmanninn í leikform að nýju og gefa honum sjálfstraust en hann fótbrotnaði illa eftir tæklingu Ryan Shawcross í febrúar.

,,Hann spilaði 45 mínútur á þriðjudag með varaliðinu og komst vel í gegnum það. En auðvitað hefur hann verið frá í níu mánuði,\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.

,,Það kom mér á óvart hversu góðar þessar 45 mínútur voru en við verðum að sjá hann í fleiri leikjum. Við þurfum að koma honum aftur í keppni og það tekur nokkra leiki.\"

Wenger lánaði einnig miðjumanninn Henri Lansbury til Norwich.

Heimild: Soccernet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.