25.11.10 - 19:00
Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Harðarson ráðinn þjálfari Fløy (Staðfest)

Jóhannes Harðarson er hér á landsliðsæfingu ásamt Kristjáni Finnbogasyni.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Skagamaðurinn Jóhannes Harðarson hefur verið ráðinn aðalþjálfari norska liðsins Fløy en þetta kom fram í norskum fjölmiiðlum í dag.
Jóhannes hafði áður verið spilandi aðstoðarþjálfari liðsins en verður nú aðalþjálfari og spilar mögulega með liðinu.
,,Við erum virkilega ánægðir, þetta er það sem við vildum helst af öllu,\" er haft eftir Terje Marcussen íþróttastjóra liðsins í Aftenbladet.
,,Hann verður aðallega þjálfari en við verðum að sjá hvað er hægt. Við verðum að sjá hvað við getum fengið í restina af þjálfarateyminu og svo sjáum við leikmannastöðuna. Hann verður aðallega þjálfari.\"
Jóhannes hafði komið tli félagsins árið 2008 en mikill orðrómur var um það hér á landi í haust að hann myndi snúa aftur heim til Íslands.
Hér á landi var hann orðaður við spilandi aðstoðarþjálfarastöðu ÍA, BÍ/Bolungarvíkur og KA en hann ákvað að vera áfram í Noregi og hefur nú tekið þetta starf að sér.

Heimild: Aftenbladet