Fotbolti.net
25.12.10 - 08:28
Magnús Már Einarsson

Hugo Almeida og Simao Sabrosa til Besiktas (Staðfest)

Hugo Almeida.

Hugo Almeida.

Canon

Mynd: Getty Images

Besiktas hefur gengið frá kaupum á portúgölsku leikmönnunum Simao Sabrosa og Hugo Almeida.
Almeida, sem er 26 ára, kemur til Besiktas frá Werder Bremen á tvær milljónir evra.

Almeida skrifaði undir þriggja ára samning við Besiktas en Werder Bremen var búið að gefast upp á að reyna að gera nýjan samning við leikmanninn þar sem launakröfur hans þóttu of háar.

Í vetur hefur Almeida skorað ellefu mörk í 20 leikjum en hann hefur alls skorað 63 mörk í 176 leikjum síðan hann kom til Werder Bremen frá Porto árið 2006.

Simao kemur til Besiktas frá Atletico Madrid á sjö milljónir evra en þessi 31 árs gamli leikmaður skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning.

Besiktas er sem stendur í fimmta sæti í Tyrklandi, 14 stigum á eftir toppliði Bursaspor, en stuðningsmenn liðsins vonast til að koma Almeida og Simao komi til með að hjálpa liðinu á síðari hluta tímabilsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.