26.01.11 - 14:02
Magnús Már Einarsson
Atli Guðjónsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BÍ/Bolungarvík hefur fengið varnarmanninn Atla Guðjónsson til liðs við sig en hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Atli var síðast á mála hjá ÍR en hann hefur æft með BÍ/Bolungarvík í vetur og gengið frá samningi við félagið.
Atli, sem er sonur Guðjóns Þórðarsonar þjálfara BÍ/Bolungarvíkur, hefur einnig leikið með ÍA og ÍBV á ferli sínum.
BÍ/Bolungarvík er einnig að vinna í að semja við Alexander Veigar Þórarinsson og Sölva Gylfason sem hafa æft með liðinu undanfarið. Alexander Veigar hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Fram en Sölvi hefur leikið með ÍA og Skallagrími.
Þá fékk BÍ/Bolungarvík í gær tvo erlenda leikmenn á reynslu og þeir verða til skoðunar hjá liðinu næstu dagana.