26.01.11 - 14:14
Magnús Már Einarsson
Valon Behrami til Fiorentina (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fiorentina hefur keypt miðjumanninn Valon Behrami frá West Ham fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 25 ára gamli Svisslendingur óskaði eftir að fá að yfirgefa West Ham á dögunum og honum hefur nú orðið að ósk sinni.
Behrami skoraði fimm mörk í 63 leikjum á ferli sínum hjá West Ham en félagið keypti hann frá Lazio á fimm milljónir punda árið 2008.
Behrami hóf tímabilið 2008/2009 af krafti með Hömrunum en meiddist síðan á hné og var frá keppni í meira en hálft ár.
Á þessu tímabili lék Behrami sjö leiki í ensku úrvalsdeildinni en fjölskylda hans var ósátt á Englandi og þess vegna vildi hann fara.

Heimild: Sporting Life