26.01.11 - 14:33
Magnús Már Einarsson
Gael Kakuta til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fulham hefur fengið Gael Kakuta á láni frá Chelsea út þetta tímabil. Þessi 19 ára gamli Frakki stóðst læknisskoðun hjá Fulham í gær og núna er búið að ganga frá samningum
Kakuta verður þó ekki með Fulham gegn Liverpool í kvöld og hann er einnig ólöglegur í bikarleiknum gegn Tottenham um helgina.
Fyrsti leikur hans með Fulham verður því væntanlega gegn Newcastle í næstu viku.
Kakuta hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Chelsea en hann hefur einungis fjórum sinnum verið í byrjunarliðinu á þessu tímabili.
Kakuta var orðinn vel þekkt nafn í knattspyrnuheiminum áður en hann hóf að leika með aðalliði Chelsea því að félagið var sett í félagaskiptabann árið 2009 fyrir að hafa brotið reglur þegar leikmaðurinn kom frá Lens.
Félagaskiptabanninu var síðan frestað í nóvember 2009 og það hafði því lítil áhrif á Chelsea.

Heimild: Sky