26.02.11 - 15:14
Hafliði Breiðfjörð
Marlon Harewood til Barnsley (Staðfest)

Marlon Harewood í baráttu við Ásgeir Gunnar Ásgeirsson leikmann FH í leik liðanna á Villa Park.

Mynd: Getty Images

Marlon Harewood framherji Blackpool hefur verið lánaður til Barnsley út tímabilið.
Þetta staðfesti Mark Robins stjóri Barnsley á vef félagsins. ,,Marlon er frábær viðbót við hópinn. Hann hefur skorað fimm mörk í úrvalsdeildinni á tímabilinu og hefur sannað gæði sín,\" saðgi Robins.
Harewood sem er 31 árs gamall hefur verið sjö sinnum í byrjunarliði Blackpool á tímabilinu og komið níu sinnum inn á sem varamaður.
Hann er fyrrverandi leikmaður West Ham og Newcastle og var félagslaus þegar hann kom til Blackpool í ágúst og gerði tveggja ára samning.
Hann skoraði tvö mörk í fyrsta leik liðsins í úrvalsdeildinni gegn Wigan en meiddist svo aftan í læri á æfingu í nóvember og var frá keppni í mánuð.
Hann sneri svo aftur í leik gegn Sunderland en hefur ekkert skorað í fimm leikjum í röð.

Heimild: BBC