Fotbolti.net
26.03.11 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Lucas Piazon til Chelsea (Staðfest) - Kemur á næsta ári

Abramovich klappar kannski fyrir Piazon í framtíðinni.

Abramovich klappar kannski fyrir Piazon í framtíðinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Búið er að ganga frá því að hinn 17 ára Lucas Piazon gangi til liðs við Chelsea. Hann kemur þó ekki fyrr en í janúar 2012 frá brasilíska liðinu Sao Paulo. Um er að ræða sókndjarfan miðjumann.
Samkvæmt reglum má hann ekki gera samning við Chelsea fyrr en hann verður 18 ára og á hann afmæli í hjanúar. Talið er að leikmaðurinn kosti Chelsea í kringum tíu milljónir punda sem verður að teljast hátt verð fyrir svona ungan leikmann.

Piazon er nú með U17-landsliði Brasilíu á Suður-Ameríkumótinu í Ekvador. Þar hefur hann skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjunum, sigurmark gegn Venezuela og svo í tapleik gegn Paragvæ. Hann var sterklega orðaður við Juventus á Ítalíu áður en Chelsea ákvað að reyna að fá hann til sín.

Roman Abramovich. eigandi Chelsea, hefur verið duglegur við að fjárfesta í Brasilíumönnum. Hann fékk varnarmanninn David Luiz frá Benfica í janúar. Þá eru miðjumaðurinn Ramires og varnarmaðurinn Alex frá Brasilíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.