Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 16:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úrslitaleikur Kjarnafæðimótsins á morgun - Styrktarleikur fyrir Kvennaathvarfið
KA 2 lagði Þór að velli snemma í keppninni. Þór 2 vann svo KA tveimur vikum síðar.
KA 2 lagði Þór að velli snemma í keppninni. Þór 2 vann svo KA tveimur vikum síðar.
Mynd: Aron Elí
Úrslitaleikur Kjarnafæðimótsins fer fram annað kvöld og spilað verður í Boganum á Akureyri. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og mætast KA og Þór enn eitt árið í úrslitaleik mótsins. Þór vann KA í úrslitaleiknum í fyrra en þar á undan hafði KA unnið mótið sjö ár í röð.

Það kostar 1000 krónur inn og rennur aðgangseyririnn óskiptur til Kvennaathvarfsins á Akureyri.

Hamborgarar og fleira verða í boði í Hamri frá klukkan 17:00.

Þór og KA verða bæði í Bestu deildinni í sumar, í fyrsta sinn bæði í efstu deild síðan 2002. Þór vann Þór 2 í undanúrslitum og KA vann lið Magna frá Grenivík.

Framundan hjá liðunum eru svo leikir í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Þór fær FH í heimsókn í Bogann annan laugardag og KA heimsækir annað hvort Hött eða Neista D.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner