Fotbolti.net
26.04.11 - 10:59
Hafliði Breiðfjörð

Danskur varnarmaður í Stjörnuna (Staðfest)

Danskur varnarmaður í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski varnarmaðurinn Nikolaj Hagelskjær Pedersen er genginn til liðs við Stjörnuna frá Vejle í heimalandi sínu en frá þessu er greint á danska knattspyrnuvefnum Bold.dk þar sem kemur fram að leikmaðurinn verði með Stjörnunni á láni út júní mánuð en þá rennur samningur hans við danska félagið út.
Hagelskjær sem er tvítugur kom upp úr unglingastarfi Vejle og hefur spilað þrjá leiki í vörn liðsins á tímabilinu í Danmörku.

,,Ég var þarna fyrr á árinu til að skoða aðstæður og hef síðan verið í sambandi. Ég fer þangað í dag og æfi með þeim í víku þar til tímabilið hefst í byrjun maí,\" sagði Hagelskjær við vefinn.

,,Ég hlakka til að fá að spila reglulega og hlakka til að vera með þjálfara sem treystir mér. Mig hefur vantað það síðasta síðustu sex til sjö mánuði og vantaði einhver framtíðarplön.\"

,,Hjá Stjörnunni búast þeir við að ég verði í byrjunarliðinu en ef ég spila eins og kartöflupoki verð ég auðvitað settur á bekkinn. En þeir hafa trú á mér og ég er ánægður með að endurgjalda það.\"

Heimild: Bold.dk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.