26.08.23 - 16:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið FH og Vals: Daði og Sveinn Sigurður verja mörkin - Adam Páls ekki í hóp

Sveinn Sigurður ver mark Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði í marki FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Sigurður ver mark Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 16:00 hefst viðureign FH og Vals í 21. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli, heimavelli FH.
Þjálfarar liðanna hafa opinbert byrjunarlið sín og má sjá þau neðst. Frá 2-2 jafnteflinu gegn HK gerir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, tvær breytingar.
Þjálfarar liðanna hafa opinbert byrjunarlið sín og má sjá þau neðst. Frá 2-2 jafnteflinu gegn HK gerir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, tvær breytingar.
Lestu um leikinn: FH 3 - 2 Valur
Kjartan Henry Finnbogason tekur út leikbann og markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson glímir við meiðsli. Sindri er þó á bekknum í dag en Daði Freyr stendur á milli stanganna. Grétar Snær kemur inn fyrir Kjartan.
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gerir þrjár breytingar frá 0-4 tapinu gegn Víkingi um síðustu helgi. Sveinn Sigurður kemur í markið hjá Val og Frederik Schram tekur sér sæti á bekkinn. Þá taka þeir Hlynur Freyr Karlsson og Orri Hrafn Kjartansson sér sæti á bekknum. Birkir Heimisson og Guðmundur Andri Tryggvason koma inn í liðið. Það vekur athygli að Adam Ægir Pálsson er ekki í leikmannahópi Vals í dag.

Byrjunarlið FH
- 24. Daði Freyr Arnarsson (m)
- 3. Haraldur Einar Ásgrímsson
- 4. Ólafur Guðmundsson (f)
- 6. Grétar Snær Gunnarsson
- 8. Finnur Orri Margeirsson
- 10. Björn Daníel Sverrisson (f)
- 11. Davíð Snær Jóhannsson
- 23. Viðar Ari Jónsson
- 29. Vuk Oskar Dimitrijevic
- 34. Logi Hrafn Róbertsson
- 90. Arnór Borg Guðjohnsen
Byrjunarlið Valur
- 95. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
- 2. Birkir Már Sævarsson (f)
- 4. Elfar Freyr Helgason
- 7. Aron Jóhannsson
- 9. Patrick Pedersen
- 10. Kristinn Freyr Sigurðsson
- 11. Sigurður Egill Lárusson
- 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
- 14. Guðmundur Andri Tryggvason
- 22. Birkir Heimisson

Daði í marki FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð