26.11.10 - 07:23
Hafliði Breiðfjörð
Sandra Sigurðardóttir til Jitex í Svíþjóð (Staðfest)

Sandra fer til Jitex.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra fer til Jitex.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnunnar og íslenska landsliðsins er gengin í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Jitex en þetta kom fram í Morgunblaðinu í morgun.
Jitex endaði í sjötta sæti sænsku deildarinnar á síðustu leiktíð en þetta er sama lið og Rakel Hönnudóttir leikmaður Þór/KA hafði hafnað fyrr í vetur.
Sandra hefur verði aðalmarkvörður Stjörnunnar undanfarin ár og ljóst að það verður missir fyrir liðið að missa hana úr liðinu.
Hún lék í marki íslenska landsliðsins í síðasta leik liðsins gegn Eistlandi ytra í október.
Hún er þriðji landsliðsmarkvörður Íslands sem fer í sænsku deildina því fyrir er Þóra B. Helgadóttir hjá LdB Malmö og Guðbjörg Gunnarsdóttir er hjá Djurgården.
Þar með stefnir í að enginn þeirra markvarða sem hafa spilað með íslenska landsliðinu undanfarin ár verði áfram í deildinni því María Björg Ágústsdóttir er líklega á förum frá Val eins og hafði áður komið fram.

Heimild: mbl.is