Fotbolti.net
26.11.10 - 17:44
Hafliði Breiðfjörð

Heiða Dröfn Antonsdóttir í Fylki (Staðfest)

Heiða Dröfn ásamt Jóni Páli Pálmasyni þjálfara liðsins eftir undirskriftina í dag.

Heiða Dröfn ásamt Jóni Páli Pálmasyni þjálfara liðsins eftir undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Heiða Dröfn Antonsdóttir gekk í dag í raðir Fylkis og skrifaði undir samning við félagið undir kvöld. Hún kemur frá Val þar sem hún hefur verið allan sinn fótboltaferil.
Heiða Dröfn er einn af efnilegri leikmönnum landsins. Heiða sem er fædd 1992 hefur spilað 23 landsleiki með 17 og 19 ára liðunum og skorað í þeim 2 mörk en hún á að baki 11 leiki í efstu deild.

Hún spilaði fimm leiki með Val í Pepsi-deildinni í sumar.

Heiða er dóttir Ragnheiðar Víkingsdóttur fyrrum leikmanns Vals sem á sínum tíma spilaði 8 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 1 mark.

Faðir Heiðu er Anton Karl Jakobsson en hann spilaði rúmlega 270 leiki fyrir meistaraflokk Fylkis og spilaði 6 leiki með yngri landsliðunum á sínum tíma.

Rætt verður við Heiðu Dröfn og Jón Pál Pálmason þjálfara Fylkis í sjónvarpi Fótbolta.net í fyrramálið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.