26.11.10 - 20:39
Hafliði Breiðfjörð
Rúrik Andri Þorfinnsson í Fylki (Staðfest)

Rúrik Andri eftir undirskriftina hjá Fylki í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Rúrik Andri Þorfinnsson er genginn til liðs við Fylki frá Fram og skrifaði undri þriggja ára samning við Árbæjarfélagið undir kvöld.
Rúrik sem er 18 ára gamall hefur spilað einn leik með meistaraflokki Fram sem var gegn Þrótti í Pepsi-deildinni sumarið 2009.
Hann sagði við Fótbolta.net í kvöld að hann hafi valið að skipta yfir í Fylki til að eiga möguleika á að fá fleiri tækifæri til að spila.
Rúrik er mikill markaskorari og hefur mikinn hraða. Hann er sóknarmaður sem skoraði 24 mörk með 2. flokki Fram á síðustu leiktíð.
Hann hefur leikið 6 leiki með U-17 ára landsliði Íslands. Þess má svo til gamans geta að hann er sonur Þorfinns Ómarssonar og þar af leiðandi barnabarn Ómars Ragnarssonar.