Fotbolti.net
26.11.10 - 21:56
Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Björnsson í Keflavík (Staðfest)

Kristinn við undirskriftina ásamt Þorsteini Magnússyni formanni og framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Kristinn við undirskriftina ásamt Þorsteini Magnússyni formanni og framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Canon

Mynd: Jón Örvar Arason

Keflavík tilkynnti í kvöld að Kristinn Björnsson fyrirliði Njarðvíkur sé genginn til liðs við félagið.
Kristinn skrifaði undir þriggja ára samning við Keflavík en hann hefur allan sinn feril spilað með uppeldisfélagi sínu, Njarðvík.

Kristinn er 23 ára gamall, fæddur árið 1987. Hann hefur leikið 124 leiki með Njarðvík í deild og bikar og skorað 8 mörk.

,,Kristinn er öflugur leikmaður sem getur spilað flest allar stöður og mun styrkja okkar lið mikið. Það er ánægjulegt að vera búið að fá þennan sterka leikmann til okkar og bjóðum við hann velkominn í hópinn,\" sagði í tilkynningu frá Keflavík.

Rætt verður við Kristinn í viðtali hér á Fótbolta.net í fyrramálið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.