26.12.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Yuri Semin tekur við Dinamo Kiev (Staðfest)

Yuri Semin.

Mynd: Getty Images

Yuri Semin.

Mynd: Getty Images
Yuri Semin hefur verið ráðinn þjálfari Dynamo Kiev í Úkraínu að nýju en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Semin sem er 63 ára gamall Rússi var rekinn frá Lokomotiv Moskvu fyrir hálfu ári síðan. Hann tekur við starfinu af Valery Gazzaev.
Semin var áður hjá Dynamo Kiev frá 2007-2009 og gerði liðið að meisturum árið 2009.
,,Ég er ánægður með að snúa aftur til Dynamo,\" sagði hann við UEFA.com ,,Þetta er félag sem er stöðugt að þróast að mér skilst og það er mjög mikilvægt fyrir þjálfara.\"
,,Ég mun ekki gera neinar stórar breytingar því ég hef þegar góðan hóp úr að ráða sem forverar mínir, Valeri Gazzaev og Oleg Luzhny hafa sett saman. Við erum með unga leikmenn sem eru þegar farnir að spila með Úkraínu og verðum að nota þá.\"
Liðið er í 2. sæti deildarinnar, 12 stigum á eftir toppliði Shakhtar Donetsk eftir 10 leiki. Liðið er einnig komið áfram í Evrópudeildinni þar sem þeir mæta Besiktas.

Heimild: AFP