27.01.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jens Elvar í Þrótt (Staðfest)

Jens Elvar í leik með Þrótti árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Jens Elvar Sævarsson hefur gengið til liðs við sína gömlu félaga í Þrótti.
Jens Elvar hefur undanfarin tvö ár verið spilandi þjálfari hjá Hvöt á Blönduósi en hann lék einnig með liðinu síðari hluta sumars árið 2008.
Þessi þrítugi varnarmaður er uppalinn í Þrótti og hefur leikið með liðinu lengst af á sínum ferli.
Auk þess að leika með Hvöt hefur Jens einnig spilað með Fjarðabyggð og Fylki hér á landi.
Jens Elvar hefur æft með Þrótti í vetur og hann er nú kominn með leikheimild með liðinu.