27.01.11 - 09:05
Hafliði Breiðfjörð
Nanna Rut og Guðný Guðleif í FH (Staðfest)

Leikmennirnir tveir ásamt Guðrúnu Jónu og Helenu þjálfurum.

Mynd: FH

Kvennalið FH hefur fengið góðan liðsstyrk því markvörðurinn Nanna Rut Jónsdóttir er komin til félagsins frá ÍBV og Guðný Guðleif Einarsdóttir er komin til þeirra frá KR.
Nanna Rut varði mark ÍBV í fyrra er liðið vann 1. deild kvenna og tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni í ár. Það má segja að FH og ÍBV geri markmannsskipti því Birna Berg Haraldsdóttir sem varði mark FH í fyrrasumar er farin til ÍBV á láni út komandi leiktíð.
Nanna Rut er 26 ára gömul og hefur leikið með Haukum, Þrótti/Haukum, Stjörnunni, ÍBV, ÍR og Fylki, samtlas 80 leiki í deild og bikar.
Guðný Guðleif Einarsdóttir er einnig 26 ára. Hún tók sér hlé með KR síðasta sumar en ákvað svo á miðju sumri að leika með Sindra á Hornafirði þar sem hún spilaði fjóra leiki.
Hún hafði verið hjá KR í átta tímabil frá árinu 2002-2009 og lék þar um 130 leiki.
FH féll úr Pepsi-deildinni í haust og leikur því í 1. deildinni næsta sumar. Helena Ólafsdóttir þjálfar liðið og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir er henni til aðstoðar.