Fotbolti.net
27.01.11 - 09:43
Magnús Már Einarsson

Van der Sar hættir eftir tímabilið (Staðfest)

Van der Sar hættir eftir tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Edwin van der Sar, markvörður Manchester United, hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna í sumar.
Þessi fertugi Hollendingur hefur varið mark Manchester United síðan hann kom til félagsins frá Fulham árið 2005.

Van der Sar hefur alls leikið 245 leiki með Manchester United en hann hefur þrívegis orðið enskur meistari með liðinu auk þess sem hann var í sigurliðinu í Meistaradeildinni árið 2008.

,,Það er kominn tími á að sinna fjölskyldu minni,\" sagði van der Sar í yfirlýsingu í dag.

Van der Sar hefur verið að íhuga að hætta síðan að Annemarie eiginkona hans fékk heilablóðfall í desember árið 2009.

,,Ég get ekki sagt til um hvenær ég tók þessa ákvörðun nákvæmlega. Þetta hefur verið í huga mínum frá því að Annemarie fékk heilablóðfall. Hún hefur náð sér eftir þetta og við ákváðum í fyrra að vera eitt tímabil í viðbót á Englandi þar sem ég myndi spila með Manchester United.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.