Fotbolti.net
27.01.11 - 18:59
Magnús Már Einarsson

Danny Shittu til QPR (Staðfest)

Danny Shittu til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn stóri og stæðilegi Danny Shittu hefur gengið til liðs við Heiðar Helguson og félaga í QPR.
Þessi þrítugi leikmaður lék 182 leiki með QPR frá 2001-2006 og hann hefur nú samið við félagið út tímabilið.

Shittu yfirgaf Bolton á síðasta ári og gerði síðan stuttan samning við Millwall sem kláraðist fyrr í vikunni.

QPR er á toppnum í Championship deildinni en í síðustu viku krækti félagið einnig í Ishmael Miller, Pascal Chimbonda og Wayne Routledge.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.