27.01.11 - 18:04
Magnús Már Einarsson
Lee Hendrie til Indónesíu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lee Hendrie, fyrrum miðjumaður Aston Villa, hefur samið við Bandurng FC í Indónesíu.
Hendrie, sem er 33 ára, skrifaði undir tveggja ára samning og mun væntanlega leika sinn fyrsta leik á laugardag.
Hendrie lék á sínum tíma einn landsleik með Englendingum en undanfarin ár hefur ferill hans verið á mikilli niðurleið.
Síðast var Hendrie hjá Bradford í fjórðu efstu deild á Englandi en hann fór þaðan fyrr í mánuðinum.

Heimild: Four Four Two