Fotbolti.net
27.01.11 - 18:17
Hafliði Breiðfjörð

Margrét Sif Magnúsdóttir í FH (Staðfest)

Margrét Sif í leik með Haukum í sumar.

Margrét Sif í leik með Haukum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Margrét Sif Magnúsdóttir er gengin til liðs við FH frá nágrannafélaginu Haukum.

FH tilkynnti þetta fyrr í dag en Margrét er ungur og efnilegur leikmaður á 2. flokks aldri sem þó hefur náð að leika 32 meistaraflokksleiki, alla með Haukum.
Hún er 17 ára gömul og spilaði 16 leiki með Haukum í Pepsi-deildinni í fyrrasumar auk tveggja bikarleikja.

FH og Haukar féllu niður úr Pepsi-deildinni síðasta haust og því leika félögin í 1. deildinni næsta sumar.

Margrét Sif er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við FH frá því síðustu leiktíð lauk. Fyrr í dag sögðum við frá því að markvörðurinn Nanna Rut Jónsdóttir er komin frá ÍBV og Guðný Guðleif Einarsdóttir frá KR.

Liðið hefur misst einn leikmann, markvörðinn Birnu Berg Haraldsdóttur sem var lánuð til ÍBV út komandi leiktíð. Áður en hún fór skrifaði hún þó undir nýjan tveggja ára samning við FH.

Helena Ólafsdóttir er þjálfari FH og henni til aðstoðar er Guðrún Jóna Kristjánsdóttir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.