Fotbolti.net
27.01.11 - 17:03
Hafliði Breiðfjörð

Ágústa Jóna aftur í Grindavík (Staðfest)

Efri röð f.v. Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir, Katrín Eyberg Rúnarsdóttir, Linda Ósk Schmidt og Íris Eir Ægisdóttir. Fremri röð f.v. Guðný Margrét Jónsdóttir, Ágústa Jóna Heiðdal og Guðný Gunnlaugsdóttir.

Efri röð f.v. Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir, Katrín Eyberg Rúnarsdóttir, Linda Ósk Schmidt og Íris Eir Ægisdóttir. Fremri röð f.v. Guðný Margrét Jónsdóttir, Ágústa Jóna Heiðdal og Guðný Gunnlaugsdóttir.

Canon

Mynd: Grindavík

Kvennaboltinn
Kvennalið Grindavíkur undirbýr sig af krafti fyrir sumarið í Pepsi-deildinni. Átta leikmenn skrifuðu undir tveggja ára samninga við félagið um helgina.

Þar á meðal fyrirliðinn Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Ágústa Jóna Heiðdal fyrrverandi fyrirliði sem kemur aftur eftir barneignafrí og þá hefur hin öfluga Hólmfríður Samúelsdóttir hafið æfingar með liðinu að nýju en stefnir þó ekki á að spila með liðinu í sumar.
Á vef Grindavíkur er rætt við Garðars Páls Vignissonar í kvennaráðinu er mikill hugur í stelpunum fyrir sumarið og er engan bilbug að finna á kvennaliðinu þrátt fyrir sögusagnir um annað.

Ljóst er að framherjinn Shaneka Gordon sem skoraði 6 mörk í 7 leikjum í fyrra kemur aftur ásamt 3-4 útlendum leikmönnum í viðbót, líkt og undanfarin ár.

Þá kom hin öfluga Jóna Sigríður Jónsdóttir frá Haukum fyrir jól. Þjálfari kvennaliðsins er Jón Þór Brandsson.

Heimild: Grindavík.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.