Fotbolti.net
27.01.11 - 17:23
Magnús Már Einarsson

Salaheddine Sbai til Blackpool (Staðfest)

Salaheddine Sbai til Blackpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackpool hefur fengið varnarmanninn Salaheddine Sbai til liðs við sig frá franska félaginu Nimes.
Þessi 25 ára gamli vinstri bakvörður gerði samning við félagið út tímabilið með möguleika á framlengingu.

Sbai kemur frá Marokkó en hann hefur leikið með Nimes frá því árið 2009 þegar hann kom til félagsins frá Charleroi.

Blackpool datt út úr enska bikarnum á dögunum og er því í fríi um helgina.

Sbai gæti aftur á móti spilað sinn fyrsta leik gegn West Ham næstkomandi miðvikudag.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.